BORGARAFUNDUR Á AKUREYRI Í KETILHÚSINU KL 15:00-Landráð af "gáleysi".

Nú er maður kominn á Krókinn til Sigurjóns mágs. Borgarar úr höfuðstaðnum eru á leið til höfuðstaðar norðurlands, Akureyri. Tilefnið er Borgarafundur á Akureyri. Hann mun vera haldinn í Ketilhúsinu á Akureyri. Kl 15:00. Efni fundarins er Landráð af "gáleysi". Góðir ræðumenn eru á boðstólnum. Sigurjón mágur mun ræða um kvótann og spillinguna. Margrét Heinriksdóttir mun ræða um lög tengd landráði. Andrés Magnússon geðlæknir ræðir um möguleikana að ná fjármunum landráðamannanna til baka. Vilhjálmur Bjarnason viðskiptafræðingur ætlar að hella úr skálum reiði sinnar, eða að ég vona það að minnsta kosti. Síðan verður almenn umræða. Vonandi munu norðanmenn taka vel við sér og gera fundinn líflegan og skemmtilegan.

Landráð af gáleysi. Hvað er það í raun og veru. Landráð er sjálfsagt eitthvað flókið fyrirbæri lagalega séð. Fyrir okkur hinum dauðlegum þá snýst það um að afhenda fjöregg þeirrar þjóðar sem þú tilheyrir til einhverra annarra. Ef til vill verður einhverjum slíkum spurningum svarað á morgun á borgararfundi á Akureyri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Vonandi leysast þessi landráðamál, mér finnst að landráð af gáleysi hafi verið framið hérna á Íslandi af útrásarbarónunum, bankastjórarnir eru meðsekir og stjórnvöld.  Okkur hefur verið steypt í hræðilegar skuldir, og útrásarbarónarnir, bankastjórarnin og stjórnvöld firra sig allri ábyrgð.  Stjórnarskráin virðist bara vera uppá punt á hátíðisdögum, stjórnarskrárbrotin eru látin óátalin. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.2.2009 kl. 02:01

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Já þú meinar, það verður líflegt og fjörugar umræður í höfðuðstað Norðurlands. Ræðumenn fjölbreytt flóra, góða helgi.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 8.2.2009 kl. 03:31

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Gott að vita af þér á Sauðárkróki! Hlakka til að hitta þig á morgun

Rakel Sigurgeirsdóttir, 8.2.2009 kl. 03:49

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flottir ræðurmenn þarna.  Vonandi hefur fundurinn gengið vel þarna fyrir norðan.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.2.2009 kl. 14:22

5 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Hann gerði það Ásthildur og í þessum skrifuðu orðum er Gunnar Skúli á suðurleið ásamt samferðafólki sínu. Hann á örugglega eftir að svara þér sjálfur hvað honum fannst þegar hann skilar sér heim

Rakel Sigurgeirsdóttir, 8.2.2009 kl. 19:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband