Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
7.10.2008 | 20:21
Ísland að athlægi.
Það er ekki gaman að vera Íslendingur í dag. Sjálfstæðisflokkurinn innleiddi frelsi athafnamanna og einkavæddi bankanna. Sami flokkur lagði niður frelsið og innleiddi Ráðstjórn á Íslandi. Því má segja að við fáum bæði peninga og verklagsreglur frá gamla góða Rússlandi.
Þrátt fyrir varnaðarorð færustu manna hafa embættismenn og ráðherrar gert minnst lítið, fyrr en núna og þá í algjöru pati. Enda er umheiminum skemmt. Seðlabankinn hefur sent "ekki nægjanlega vel skilgreinda ósk" til Bandaríska seðlabankans. Spurningin er hvort umsóknin var páruð á pappírsþurrku í Seðlabankanum. Norski og sænski Seðlabankinn hafa ekki fengið neina formlega ósk um aðstoð.
Davíð er í Kastljósinu og hvítþvær sig af glæsibrag, enda enginn viðvaningur. Samt gott að fá að hlusta á hann milliliðalaust. Sannfæringarkraftur hans er svo mikill að manni líður strax mikið betur.
Vandamálið er bara að það eru svo fáir sem skilja íslensku í heiminum og fá ekki notið orða Davíðs eins og við hér heima.
6.10.2008 | 22:37
Fjárhag heimilisins borgið!
Eiginkonan tók þátt í sundmóti Garpa um helgina. Um var að ræða Norðurlandamót. Hún stakk sér ekki í laugina án þess að fá verðlaunapening. Hún fékk fjögur silfur verðlaun og eitt gull. Því er konan mín Norðurlandameistari í 50 m bringusundi Garpa. Miðað við atburði dagsins í dag hafa bankarnir ekki tileinkað sér hæfileika eiginkonu minnar að vinna en ekki að tapa. Betur hefði hún stjórnað einum eða tveimur bönkum á Íslandi. Til að ná settu markmiði þarf mikla elju og samviskusemi og virðist sem konan mín hafi það í ríkum mæli. Aftur á móti hafa bankarnir verið þaulsetnir af fólki sem heldur að allt verði til af öngvu. Eins og Fagin sagði í Oliver Tvist og orð hans eru eilíf; aflaðu 20 pensa og eyddu 19, því þá áttu afgang. Það átti konan mín og vann en bankarnir töpuðu um helgina.
Ragga Run og Helga að taka við GULLI.
Nú er bara að bræða peningana og fara með þa í Seðlabankann og bjarga Þjóðarskútunni.
Þarna er Sigurjón bróðir Helgu búinn að synda 1500 m skriðsund og fékk Brons. Flottur.
4.10.2008 | 21:59
Er lýðræði sama og lýðræði.
Lýðræði getur verið beitt á mismunandi hátt. Lýðræði getur verið notað á mismunandi hátt. Hámenntaðir fræðingar geta sjálfsagt drekkt okkur venjulegum í vangaveltum um slíka hluti. Mér finnst vera skortur á lýðræði á Íslandi. Bæði hjá þeim sem beita því og þeim sem nota það. Stjórnvöld sem starfa í skjóli lýðræðis vilja sem minnst vita af gagnrýni á sig á milli kosninga. Þau vilja frið, eins og þeim hafi verið gefin gjöf sem þau eigi heimtingu á að njóta í fjögur ár. Við sem notum lýðræðið höfum tilhneigingu til að sjá til fram að næstu kosningum. Skiptum okkur lítið af okkar kjörnu fulltrúum á milli kosninga, treystum þeim einfaldlega fyrir þjóðarskútunni. Þetta finnst mér rangt.
Ég vil mjög virkt borgarlegt lýðræði. Þ.e. borgararnir séu mjög virkir og hafi völd til að hafa áhrif á milli kosninga. Grundvöllurinn að því er að opna stjórnsýsluna. Við verðum að vita hvað okkar kjörnu fulltrúar eru að gera. Mér finnst að öll gögn eigi að vera aðgengileg nema það sem snýr beint að öryggi þjóðarinnar. Á þann hátt getum við veitt aðhald og styrk okkar þingmönnum. Það er óþolandi viðhorf að almúganum sé ekki holt að vita allar vangaveltur hjá hinum kjörnu fulltrúum. Þeir voru einu sinni líka bara almúgi eins og við.
30.9.2008 | 23:10
Frjálslyndi Flokkurinn og Kristinn H.
Á fjölmennum fundi hjá FF í síðustu viku kom fram einlæg ósk meirihluta fundarmanna að Kristinn H Gunnarsson yrði ekki lengur formaður þingflokksins.
Þingflokkurinn varð við þessari ósk fundarmanna og Jón Magnússon hefur verið skipaður formaður þingflokksins. Þarna skynjaði flokksforystan grasrótina og megi hún eiga þökk fyrir. Í Reykjavíkurfélögunum er mikill áhugi fyrir öflugu flokkstarfi. Bæði er það starf sem snýr meir að Reykjavíkurborg og málefnum hennar. Borgarmálafélagið sinnir því. Einnig eru tvö kjördæmafélög í Reykjavík sem tengjast frekar starfinu á landsvísu með hugann við alþingiskosningar Við væntum þess að sú breyting sem gerð hefur verið á æðstu stjórn FF muni hafa það í för með sér að starfið í Reykjavík muni eflast mjög. Afleiðing þess gæti orðið aukið fylgi við flokkinn og fleiri (kven)menn á þing. Ef svo fer mun landsbyggðin njóta ávaxtanna af vinnu okkar í Reykjavík.
Vonandi er hér um gæfuspor að ræða fyrir Frjálslynda flokkinn. Að minnsta kosti hefur alvarlegt ágreiningsefni innan flokksins verið leyst.
19.9.2008 | 19:42
Ekki gera ekki neitt.
Eitthvað er veðurspáin hálf ónotaleg hjá okkur þessa dagana. Stefnir í storm og óveður. Reyndar hefur blásið á skerinu áður og enn byggir þjóð landið. Veðurfar og önnur náttúra hefur engu að síður sett mark sitt á tilveruna. Margt væri öðruvísi ef alltaf hefði verið logn.
Eins er það í stjórnmálum. Núna gustar dulítið í Frjálslynda flokknum. Nýjasta rokinu veldur tillaga sem Eiríkur Stefánsson flutti í miðstjórn um daginn. Þar fer hann fram á það að þingflokkurinn velji sér nýjan formann. Það myndi falla betur að jafnræðisreglu að valdamikil embætti væru ekki öll frá sama kjördæminu. Guðjón Arnar var ekki sáttur við þessa tillögu vitandi að tillagan myndi valda honum mikilli vinnu við að bera klæði á vopnin. Reyndar er Guðjón í vanda. Það skiptir varla máli hvernig Guðjón bregst við, það munu alltaf einhverjir verða ósáttir. Spurningin er hvernig hann lendir þessu máli.
Nauðsynlegt er að taka af skarið þannig að sem flestir flokksmenn verði nokkurn veginn ánægðir og starfsfriður komist á í flokknum. Eins og segir í auglýsingunni,"ekki gera ekki neitt".
18.9.2008 | 22:30
BerlínarMúrinn og Frjálslyndi flokkurinn.
Var að koma frá Berlín í dag. Mjög merkileg borg og gott að vera ferðamaður þar. Sá að vísu bara borgarkjarnann og það er yfirleitt sá hluti sem er túristavænstur. Saga Berlínar er mjög merkileg því hluti íbúanna var lokaður inni árum saman með Berlínarmúrnum. Þrátt fyrir að múrinn sé horfinn er saga hans enn ljóslifandi í Berlín.
Á meðan ég var fjarverandi varð allt vitlaust í Frjálslynda flokknum. Miðstjórn flokksins samþykkir ályktun þess efnis að þingflokkurinn kjósi sér nýjan þingflokksformann. Rökstuðningurinn er sá að halli sé á lýðræðinu og jafnræðinu innan þingflokksins. Mönnum finnst ekki eðlilegt að formaður flokksins og þinflokksformaðurinn komi báðir úr sama kjördæminu. Meiri valddreifing sé eðlileg og af hinu góða.
Það verður mjög spennandi að fylgjast með framvindu þessa máls. Vonandi hafa menn gæfu til sátta.
17.9.2008 | 23:11
Daður Össurar við Frjálslynda flokkinn.
Össur fer mikinn á heimasíðu sinni í dag. Margt tilreiðir hann sér í hag. Útlendingastefna FF er varkár stefna sem setur spurningamerki við ýmislegt í þeim málaflokki. Ástæðan er sú að nágrannaþjóðir okkar hafa átt í erfiðleikum með nýbúa. Við í FF höfum viljað draga fram það sem hefur gengið miður og hvað hefur gengið vel hjá nágrannaþjóðum okkar í þessum málaflokki. Fyrir vikið erum við kallaðir rasistar. Þetta veitir andstæðingum okkar góðan höggstað á okkur. Samfylkingarmenn, eins og Össur vita þetta mæta vel. Þeir velta sér upp úr þessu eins og svín í flór.
Að temja sér yfirsýn og stjórn á aðstreymi nýbúa til landsins er kallað rasismi. Svipuð örlög hljóta þeir sem vilja ekki drekka áfengi stjórnlaust. Þynnkan gæti orðið verri en menn hugsuðu sér.
Að Sigurjón vilji velta Guðjóni úr sessi er rangtúlkun á ástandinu. Sigurjón eins og margir í flokknum vilja að honum sé stjórnað og að jafnræðis sé gætt á milli landshluta og stefnumála. Mikill halli hefur verið á flokknum í átt að Vestfjörðum og því hefur mörgum þótt ástæða til að breyta því. Af þeim sökum fær Sigurjón áskorun um að gefa kost á sér í formanninn. Hvort hann geri það er alls óvíst. Guðjón hafnaði Sigurjóni á sínum tíma, sjálfsagt fyrir áeggjan Kristins H. Sennilega er það sterkur hvati innan FF að hvetja Sigurjón til til formennsku þegar Framsóknarmaður setur fyrir hann fæturna. Ef hann er velkominn í Samfylkinguna er það vel.
![]() |
Össur býður Kristin H. velkominn í Samfylkinguna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.9.2008 | 20:46
Er múrinn rofinn?
Nú hefur sáttasemjara þótt nóg komið og lagt fram miðlunartillögu. Samninganefnd ljósmæðra ætlar að mæla með þessari tillögu Ásmundar. Það hljómar mjög spennandi. Ef til vill ætlar Ásmundur á endasprettinum að hygla verkalýðnum, svona hálfgerður svanasöngur sáttasemjara áður en hann hættir. Hitt er líka möguleiki að ríkið hafi verið búið að rífa tennurnar svo úr ljósmæðrum að þær sætta sig við hvað sem er. Það sem gerir þennan kafla svo spennandi er hvort ljósmæðrum tekst að rjúfa múrinn. Tekst þeim að ná fram réttlátri leiðréttingum á sínum kjörum. Tekst þeim sem kvennastétt að fá kjarabætur sem er í einhverju samræmi við kaup og kjör slöngustrákanna í bönkunum. Ábyrgð ljósmæðra er mikil því mikið er í húfi. Ekki bara fyrir þær heldur fleiri kvennastéttir. Þetta er einnig fordæmisgefandi að menntun sé einhvers metin en ekki bara að raða síld eða peningum í tunnur til útflutnings.
Ég er í Berlín þessa dagana. Berlínarmúrinn og sú frelsisskerðing sem fólst í honum var ekki brotin á bak aftur á einni nóttu. Sama á við þann múr sem umlykur kjör kvenna á Íslandi. Í dag er Berlínarmúrinn horfinn. Allir eru sáttir, líka þeir sem byggðu hann og sjá núna hversu mikil mistök hann var. Vonandi munu múrararnir í Fjármálaráðuneytinu skynja sinn vitjunartíma.
![]() |
Verkfalli aflýst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.9.2008 | 17:28
BERLÍN-1
Sælt veri fólkið,
við hjónin komin til Berlínar og það í fyrsta skiptið. Við fyrstu kynni frábær borg. Margt að skoða og gera. Góður matur enn sem komið er. Búum í íbúð rétt hjá Checkpoin-Charlie. Þar mættust austur og vestur Berlín. Mikið af myndum og frásögnum á þeim slóðum og einnig safn um þá sögu. Greinilegt að þetta situr fast enn í sál Berlínarbúa. Erum að fara út að borða með félögum okkar, meira síðar.
9.9.2008 | 20:25
Sigurjón Þórðar næsti formaður FF ?
Frjálslyndi flokkurinn fyrir norðan hefur skorað á Sigurjón Þórðarson til að gefa kost á sér sem næsti formaður Frjálslynda flokksins á Íslandi. Þegar slíkar hugmyndir ná upp á yfirborðið og verða opinberar er oftast bara um toppinn á ísjakanum að ræða. Þannig er það í þessu tilfelli því allir vita að Sigurjón á mikinn og almennan stuðning meðal flokksmanna. Auk þess á hann almenna hilli meðal stuðningsmanna annarra stjórnmálaflokka. Spurningin er hvort Sigurjón vill gefa kost á sér.
Guðjón Arnar er einnig mjög vinsæll meðal margra flokksmanna Frjálslynda flokksins og nýtur virðinga langt út fyrir flokkinn. Aftur á móti virðist sem hópur innan flokksins telji að Sigurjón sé betur til þess fallinn að stýra honum næstu árin. Sigurjón er náttúrulega yngri og höfðar því sennilegar til yngri kjósenda. Þrátt fyrir það er hann reynslumikill í pólitík og hefur staðið sig vel á þeim vettvangi.
Hvað svo sem Sigurjón ákveður að gera þá treysti ég honum fyllilega til að leiða flokkinn. Hann hefur mikla tilfinningagreind og tekur vel eftir öðru fólki. Hann er einnig maður sátta og samlyndis og fæst óhræddur við slík vandamál. Já ég held bara að hann sé fínn í jobbið.
![]() |
Vilja að Sigurjón gefi kost á sér sem formaður Frjálslynda flokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |