Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Löðrungur Göran Perssons.

 Göran Persson fyrrum fjármála og síðar forsætisráðherra Svíþjóðar var boðið að halda fyrirlestur í Háskóla Íslands í dag. Síðan var viðtal við kappann í Speglinum í útvarpinu í kvöld.Ég var búsettur í Svíþjóð á þessum árum. Kannast vel við kreppu af þeim sökum. Aftur á móti leið mér aldrei neitt sérstaklega illa í Svíþjóð í kreppunni þar. Aftur á móti er ég með mikið óbragð í sálinni vegna kreppunnar okkar. Það var mjög sérkennilegt að heyra rödd Görans úr útvarpinu í kvöld. Allt í einu var maður kominn til Svíþjóðar í einni svipan. Aftur "heim". Það rifjaðist upp fyrir mér hvers vegna hlutirnir gengu vel fyrir sig í Svíþjóð, það var nagli í brúnni sem sagði okkur umbúðalaust hvað hann ætlaði að gera. Í Svíþjóð er miklu meira gegnsæi en á Íslandi. Þar geta allir fengið aðgang að gögnum sem myndu valda heilablóðfalli hjá hvaða embættismanni á Íslandi.

Þar gaf hann íslenskum ráðamönnum á kjaftinn í dag. Göran sagði að allt ætti að vera upp á borðum, allar upplýsingar sem skipta máli. Hann tiltók sérstaklega fjármálafyrirtækin. Í meir en tvo mánuði hafa fjölmiðlar reynt að fá einhverjar upplýsingar en skrápurinn á leynimakkinu hefur varla rispast.

Allt traust á milli þjóðar og valdhafa er horfið. Allt traust milli þjóðar og eftirlitsstofnana er horfið. Þjóðin er orðin sannfærð um að verið sé að hlunnfara hana á bak við tjöldin. Aldrei fékk ég þessa tilfinningu í kreppunni í Svíþjóð. Það er margt og mikið að hjá okkur Íslendingum og Göran benti á margt í dag, ætli einhver taki mark á honum. 

 

http://www.landskronadirekt.com/bilder_nyheter/goran_persson060829.jpg


Er þér rótt?-Ekki mér.

Borgarfundurinn í gær í Háskólabíói var upplifun á vissan hátt. Ríkissjónvarpið kom við og pikkaði upp eina línu, verðtrygging já eða nei, og svo var fundurinn afgreiddur. Þvílík yfirborðsmennska, allt gert til að halda feisinu svo að maður styggi engan sem getur bitið mann. Heiglar. Fjölmiðlar eiga að vera gagnrýnir og vagga gagnrýnnar hugsunar. Þess í stað reyna þeir að rata einhvern meðalveg sem heldur öllum góðum, svo þeir missi ekki vinnuna. Hvers vegna tóku þeir ekki öll svör sem fengust á fundinum og krufðu þau til mergjar, véfengdu eða staðfestu þau. Hvar er alvöru rannsóknarblaðamennska, ég bara spyr?

Hrafn formaður allra lífeyrissjóðanna fullyrti að tap lífeyrissjóðanna á bankabólunni væri um það bil 14% og að öllum sjóðfélögum væri tryggð full réttindi til frambúðar. Var maðurinn í löngu sumarfríi eða heldur hann að við séum bjánar. Öll bólan er komin í núll eða neðar. Lífeyrissjóðirnir fjárfestu að töluverðu leiti í þessari bólu og því hlýtur rýrnunin að vera meiri en 14%. Ég bendi ykkur á mjög athyglisverða samantekt Risaeðlunnar um þessi mál.

Ég rakst á tilvísun á netfærslu. Þar stendur "Talaði við mann um helgina sem sagðist hafa það frá fyrstu hendi að ríkisstjórnin væri búin að gera samning við fjölmiðlafyrirtækin þrjú sem stjórna nánast allri umræðu í þjóðfélaginu um það að kæla og róa fólk niður."  Það er sem sagt búið að segja fjölmiðlum hvernig þeir eigi að haga sér svo að valdhafar geti haldið gleðileg jól.

Lífeyrissjóðirnir segja okkur ekki allan sannleikann svo við séum róleg. Fjölmiðlum eru gefin fyrirmæli um að róa okkur. Skilanefndirnar segja okkur ekki neitt, svo við séum róleg. Ríkisstjórnin og verkalýðsforystan keppast við að róa okkur með innihaldlausu bulli. Á meðan heldur spillingin og sukkið áfram eins og ekkert hafi í skorist. Fyrirgefið, en mér er ekki rótt, þannig er það bara. Ég skil vel fólk sem hyggur a landvinninga á erlendri grund þar sem lýðræðið virkar betur.


Borgarafundur á morgun kl 20:00-Háskólabíó.

borgarafundur5-8des.jpg

Hvet alla til að mæta og spyrja spurninga.


Borgarafundur.org-Agora.

Grein sem birtist eftir mig í Morgunblaðinu í dag.

Fyrirbærið Borgarafundur.org hefur gert sig gildandi á liðnum vikum í umræðunni. Leikstjóranum Gunnari Sigurðssyni leiddist allt í einu það sem flatskjárinn hans hafði upp á að bjóða. Á flatskjánum endurómuðu vandamálasögur fólks og hremmingar fræga fólksins. Dr. Phil sagði okkur að svona væri þetta hjá mörgum og við þyrftum að leysa þetta sjálf. Vandamálin tilheyra einstaklingunum og lausnirnar einnig. Á þessu torgi flatskjásins er sjaldnast leitað lausna með umræðu milli stjórnvalda og einkalífs. Flatskjárinn er milliliður og því getur hann aldrei komið í stað fundar þar sem valdhafar mæta almenningi til skrafs og ráðagerða. Flatskjárinn hans Gunna virtist ófær um að fá fram svör við ýmsum brennandi spurningum sem hrjáðu hann.

Þess vegna stóð Gunnar upp úr sófanum sínum og hélt Borgarafund í Iðnó. Borgarafundirnir eru torg þar sem „ráðið“ mætir fólkinu. Þar eiga persónuleg vandamál að umbreytast í opinber mál. Aþeningar til forna kölluðu þennan „hitting“ tveggja afla í þjóðfélaginu Agora. Þar sem fólkið mætti hinu opinbera. Þar fór fram lagasetning og niðurstaða þessara funda var ætíð inrömmuð í orðin „það dæmist gott af ráðinu og fólkinu“. Takið eftir því að fólkið var með í ráðum. Ekki að útkoman væri endanlega rétt og óbreytanleg. Þess vegna gat sú útkoma ekki endilega verið góð á næsta fundi í ljósi breyttra aðstæðna. Lýðræðisiðkun er ekki endanleg sannindi heldur síbreytileg framþróun ákvarðana flestum til hagsbóta í „Borginni“.

Það sem Gunnar gerði var að endurtaka söguna. Hann endurreisti Agora. Hann skapaði vettvang þar sem fólkið og „ráðið“ mættust. Skoðanaskipti eru ekki eini tilgangur Agora. Mikilvægur þáttur er að kynnast hvert öðru, skilja hvert annað og læra að lifa saman í sátt. Þegar nokkrir fulltrúar „ráðsins“ á Íslandi segja að fólkið sé ekki fólkið og að það sé sérkennilegt að fólkið hafi mætt á fundinn, þá ber það vott um skort á skilningi hvernig borgaralegt lýðræði hefur starfað í árþúsundir.

Tilgangur Borgarafunda er að skapa aðstæður svo að fólkið geti mætt „ráðinu“. Um er að ræða þverpólitíska hreyfingu. Allir sameinast um þetta markmið, að gefa borgurunum tækifæri til að komast að valdhöfunum milliliðalaust. Að sjálfsögðu erum við ekki ópólitísk, við hættum ekki að hugsa þó við höldum Borgarafundi. Við vonumst til að við séum komin til að vera. Það merkir að næstu ríkisstjórn verði líka boðið á borgarafund í fyllingu tímans. Við leitumst við að taka fyrir það sem brennur á fólkinu. Til að forðast allan misskilning þá ætlum við okkur ekki að verða pólitískur flokkur, við vitum að enginn skortur verður á slíku framtaki hjá einhverjum öðrum þegar fram líða stundir.

Bæði valdhafar og fólkið ættu að nýta sér Borgarafundi öllum til hagsbóta. Almenningur hefur tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum að og spyrja spurninga. Ef til vill munu svörin minnka kvíða almennings og þar með lægja öldurnar í þjóðfélaginu. Því er ekki að leyna að almenningi finnst gjá á milli þeirra og valdhafa. Mjög mikilvægt er að valdhafar nýti sér þessa fundi til að sættast við almenning. Markmiðið á að vera „að það dæmist gott af ráðinu og fólkinu“.

 


Sagði nokkur ósatt?


Korktappamynt.

Hvað er það sem hoppar og skoppar með mannabein í maganum, þannig hljómar gamla gátan sem við þekkjum öll. Í dag erum við með korktappamynt sem hendist út og suður eftir því hvernig vindarnir blása. Reistir hafa verið skjólveggir um krónuna okkar fyrir mörg hundruð milljarða. Þær raddir verða stöðugt háværari að við tökum upp dollara eða evrur í stað krónunnar okkar, og það einhliða. Í Viðskiptablaðinu er góð samantekt á því.  Auk þess er birt bréf eftir fyrrverandi yfirmann í framkvæmdastjórn ESB hjá Jóni bloggvini mínum. Í þessum greinaskrifum kemur fram að við getum farið þessa leið. Það er ekkert sem bannar það. Það yrði til mikilla hagsbóta fyrir allan almenning. Fyrirtæki landsins gætu farið að skipuleggja starfsemi sína í stað þess að elta korktappakrónuna okkar. Vandamálið er að Seðlabankinn okkar missti völd og það vill ekki Davíð og þess vegna vill Geir það ekki heldur. Solla vill bara fara inn í ESB. Ef við tökum upp evru einhliða þá þurfum við alls ekkert að fara inn í ESB. Þess vegna vill Solla ekki fara þessa leið. Ég vil það því ég vil búa á þessu landi en ekki vera neyddur til að flytja þegar verðtryggingin hefur gert mig gjaldþrota.
mbl.is Krónan styrktist um 11,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru bara að fá útrás.

Ýmsir eru að reyna þessa dagana að gjaldfella mótmælin sem eru víða í þjóðfélaginu. Sagt er að við séum bara að þessu til að fá útrás. Kvartað er yfir því að við komum ekki með lausnir á vandamálum þjóðarinnar. Það er greinilegt að þessi tvö orð eiga ekki saman í dag, þ.e. "útrás" og "lausnir".

Staðreyndin er sú að útrás mun hingað til tengjast vandamálum frekar en nokkru öðru. Aftur á móti tel ég að það sé tilgangur í því að fá "bara útrás". Fólki líður kannski betur, það er ekki slæmt markmið í sjálfu sér.

Ég tel að öll sú mikla virkni sem við upplifum hjá almenningi í dag sé af hinu góða. Fólk er að minnsta kosti að velta fyrir sér vandamálunum, það er forsenda þess að einhverjar lausnir komi fram.

Sumir hafa gagnrýnt Borgarafundina, eins og þann sem var í Háskólabíó um daginn. Sjálfsagt ekki gallalausir frekar en önnur mannanna verk. Meginstef fundanna er krafan um upplýsingar. Almenningur hefur ekki aðgang að þeim upplýsingum sem þarf til að leysa vandamál þjóðarinnar. Það er  sennilegasta skýringin á því að Jón Jónsson á götunni er ekki búinn að leysa kreppuna fyrir okkur-svona í einum grænum. Án upplýsinga er mjög erfitt að mynda sér skoðun. Mjög mörgum finnst vera mikill upplýsingaskortur á Íslandi. Við viljum búa í upplýstu samfélagi, ekki vera hluti af sértrúarflokki þar sem æðstu prestarnir ráða öllu.


Geðslag fjármagnseigenda og gjörðir þeirra.

Þeir hafa hingað til haft rangt fyrir sér og komu ekki í veg fyrir hrunið. Þeir hvísluðu um grunsemdir sínar að hugsanleg gætu bankarnir farið á hausinn. Hagfræði snýst fyrst og síðast um geðslag þeirra sem eiga peninga. Því er ekki hægt að spá um þetta frekar en hvort maður er í fýlu á morgun.
mbl.is Gengislækkun stendur stutt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vill einhver kaupa húsið mitt á 3 milljarða?

Ég hef verið að velta fyrir mér verðtryggingu eins og margir aðrir þessa dagana. Ég ákvað að prófa reiknivél Íbúðalánasjóðs. Ef ég tek verðtryggt 20 milljón kr. lán til 40 ára miðað við 20% verðbólgu þá enda ég með að borga tæpa 10 MILLJARÐA

Heildarendurgreiðsla

 ÍbúðalánasjóðurSparisjóðirSamtals lánveiting
Afborgun20.000.000 kr.
20.000.000 kr.
Vextir28.862.437 kr.
28.862.437 kr.
Verðbætur9.866.906.833 kr.
9.866.906.833 kr.
Greiðslugjald36.000 kr.
36.000 kr.
Samtals greitt9.915.805.271 kr.
9.915.805.271 kr.

Útborguð fjárhæð (andvirði)

 ÍbúðalánasjóðurSparisjóðirSamtals
Lánsupphæð20.000.000 kr.
20.000.000 kr.
Lántökugjald-200.000 kr.
-200.000 kr.
Útborgað hjá ÍLS19.800.000 kr.  
Opinber gjöld-301.350 kr.

Útborguð fjárhæð19.498.650 kr.


Áramótin 2013 og 2014 skulda ég allt húsið, þ.e. eignalaus maður.

Vorið 2042 eru eftirstöðvarnar með verðbótum liðlega 3 þúsund milljónir eða 3 milljarðar.

Svar ASÍ er að lengja lánstímann í 70 ár. Greinilega mínir menn, gallinn er bara sá að ég vænti þess ekki að verða 120 ára.

Ég er bara læknir og mín stærðfræðikunnátta er mjög takmörkuð, því spyr ég er þetta mögulegt?

 



The day after.

Tilfinningarnar eru æði sérkennilegar í dag. Það er margt og margvíslegt sem hrærist í kolli mínum. Best af öllu væri ef um draum væri að ræða og ég myndi vakna upp í gamla Íslandi þar sem allt lék í lyndi á "lánum". Hinn kosturinn er að haga sér eins og hver önnur skipsrotta og yfirgefa skerið og flytja til annarra landa og eyða ellinni þar.

Borgarafundurinn í gær markaði viss tímamót. Ef stjórnvöld hefðu bara iðrast og viðurkennt að þau hefðu getað staðið betur vaktina þá væru flest allar forsendur fyrir andófi brostnar. Þau gerðu það ekki. Þau voru hrokafull. Því er ég sorgmæddur í dag.

Við vitum öll að ástandið er mun alvarlegra en valdhafar hafa sagt okkur. Við sættum okkur ekki við að við séum sniðgengin. Það má treysta okkur fyrir sannleikanum. Við viljum vita sannleikann. Við þurfum að vita hið rétta því við þurfum að geta brugðist við á réttan hátt. Hvert foreldri ber ábyrgð á sinni fjölskyldu. Við þurfum að lámarka skaðann fyrir börnin okkar. þess vegna krefjumst við réttra upplýsinga. Fyrir börnin okkar. 

 

Image:Thedayafter.jpg


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband