AGS og Landspítalinn okkar

Grein sem birtist eftir mig í Mogganum í morgun;

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er byrjaður að setja klærnar í holdið. Boðaður er niðurskurður í heilbrigðiskerfinu og þar með á Landspítalanum. Rætt er um 9% niðurskurð á LSH og það gæti þýtt að segja þyrfti upp 4- 500 manns um leið og fjárlög landsins öðlast gildi. Hvíslað hefur verið um frekari niðurskurð næsta sumar. Ljóst er að árin 2011 og 2012 þarf að skera jafn mikið niður og árið 2010, eða meira. Það stefnir í að 700-1000 manns verði sagt upp á LSH fyrir lok árs 2013. Það er nærri 20% af 5000 manna liðsafla Landspítalans. Meðan Ísland fer eftir prógrammi AGS mun þetta gerst.

Ef við könnum sögu AGS þá er hún ekki góð. Þau lönd sem hafa lotið stjórn hans hafa upplifað mikinn niðurskurð á velferðakerfinu. Stefna þeirra hefur leitt af sér lækkun launa, atvinnuleysi og gjaldþroti heimila og fyrirtækja. Hagur almennings í þessum löndum hefur versnað verulega, sjúkdómar og dauðsföll aukist.

Við skulum líta til nágranna okkar í Lettlandi. Þeir fengu, eins og við, auðveldan aðgang að lánsfé. Aðallega frá sænskum bönkum. Úr varð mikil bóla sem síðan sprakk. Núna er þar kreppa og sænsku bankarnir vilja fá skuldirnar endurgreiddar með vöxtum. AGS er mættur á staðinn til að sjá til þess að skuldirnar séu greiddar til baka með niðurskurði og skattpíningu. Laun kennara voru lækkuð um 25% 1. september síðastliðinn. Skattar hafa hækkað. Nú þegar er búið að loka 36 skólum og 13 sjúkrahúsum. Komugjöld hafa aukist. Heilbrigðisráðherrann hefur jafnvel stungið upp á því að greiða eingöngu fyrstu tvo legudagana en síðan greiða sjúklingarnir afganginn. Forstjóri gas félagsins er búinn að gefa það út að ef reikningar verði ekki greiddir verði lokað fyrir gasið í vetur. Ríkisstjórn Lettlands reynir eftir bestu getu þessa októberdaga að slást við AGS. Lettar eru reiðubúnir að skera niður um 275 milljónir latta en AGS krefst 500 milljóna niðurskurðar á næsta ári. Lettar hafa staðið upp í hárinu á AGS nokkrum sinnum en ekki haft erindi sem erfiði.

Ísland á ekki fyrir skuldum sínum og því mun koma til meiri lán frá AGS í náinni framtíð. Afleiðingin af því verður afnám þeirrar heilbrigðis- og félagsþjónustu sem við höfum þekkt hingað til. Í öðrum löndum sem AGS hefur stjórnað hefur millistéttin snarminnkað, fátækt aukist og örfáir verið ríkir. Er þetta það sem við viljum? Er svona mikilvægt að greiða skuldir óreiðumanna, skuldir sem þú og ég vissum ekkert um fyrr en þær fóru fram yfir eindaga.

Nei segi ég. Lýsum yfir einhliða greiðslustöðvun í 5-10 ár. 27 ríki hafa gert það á síðustu 30 árum. Ræðum við lánadrottnana og semjum um skuldirnar til langs tíma og niðurfellingu á hluta þeirra. Notum andrýmið til að byggja upp heilbrigt atvinnulíf sem skilar afgangi í kassann og er að öðru leiti sjálfbært.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Gunnar, ég er sammála niðurstöðu góðrar greinar.  Hvað 27 ríki eru það sem hafa lýst yfir einhliða greiðslustöðvun?  Ég þykist vita að nokkur þeirra eru í S. Ameríku.

Magnús Sigurðsson, 17.10.2009 kl. 23:09

2 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Albania,

Algeria,

Argentina,

Bolivia,

Bazilía,

Bulgaría,

Chíle,

Costa Rica,

Dóminíska Lýðveldið,

Ekvador,

Jordanía,

Mexícó,

Moldóva,

Maróccó,

Nígería,

Pakistan,

Panama,

Perú,

Filipseyjar,

Póland,

Rúmenía,

Rússland,

Suður Afríka,

Tyrkland,

Úkranía,

Úrugvæ,

Venúsela.

Gunnar Skúli Ármannsson, 17.10.2009 kl. 23:24

3 identicon

Takk fyrir góða grein, Gunnar. Já, við "Lýsum yfir einhliða greiðslustöðvun í 5-10 ár. 27 ríki hafa gert það á síðustu 30 árum. Ræðum við lánadrottnana og semjum um skuldirnar til langs tíma og niðurfellingu á hluta þeirra. Notum andrýmið til að byggja upp heilbrigt atvinnulíf sem skilar afgangi í kassann og er að öðru leiti sjálfbært."

Helga (IP-tala skráð) 17.10.2009 kl. 23:30

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Takk fyrir svarið Það er ekki leiðum að líkast.  Ég tek undir með þér, losnum við AGS áður en þeir rústa samfélagsgerðinni. 

Magnús Sigurðsson, 17.10.2009 kl. 23:39

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr........

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.10.2009 kl. 02:05

6 Smámynd: doddý

.. gunnar minn, það verður erfitt hjá okkur næstu árin - en auðvitað fáum við nýjan spítala og þá verður allt svo miklu betra! það sagði bjössi sóega mér

ég held hann sé galinn 

kveðjur úr sjúkraskýlinu - d

doddý, 20.10.2009 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband