Mun samstarf okkar við AGS valda varanlegum skaða?

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lagt línurnar hjá okkur Íslendingum. Ríkistjórnin gerir ekkert án leyfis AGS. Því erum við í raun ekki fullvalda. Lán AGS duga fyrir jöklabréfunum margfrægu. Þegar gjaldeyrishöftin fara þá munu þessi bréf hverfa úr landi. Til að eigendur þessara bréfa fái þau á sem bestu gengi mun AGS láta okkur nota lánið til að styrkja gengið. Þar með klárast lánið og íslenskur almenningur hefur þar með borgað jöklabréfin. Sniðugt, ekki satt?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

gott viðtalið við þig á Bylgjunni !

Sigrún Óskars, 16.10.2009 kl. 16:00

2 identicon

virkilega góð grein eftir þig í Mogganum í morgun.

Karen Elísabet Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 17.10.2009 kl. 10:35

3 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Hvað er orsök og hvað er afleiðing.  Er vandi okkar AGS að kenna eða okkur sjálfum?  Auðvita hefur AGS gert mistök og viðurkennt þau en AGS er aðeins kallaður inn til þeirra landa sem eru með allt niður um sig.  Til að fá raunverulegt mat á AGS þyrfti að hafa viðmiðunarhóp landa sem eru í svipaðri stöðu og Ísland og Lettland en neita aðstoð sjóðsins.  Svo eftir 5-10 ár getum við farið að draga ályktanir hvort sjóðurinn er til gagns eða ekki.

Ég er alveg sammála þér að við misstum fullveldið okkar 6. október 2008, en það hafði ekkert með AGS að gera.  Það eru ekki bara jöklabréfaeigendur sem bíða eftir að gjaldeyrishöfin hverfa, íslenskir innistæðueigendur sem eru með yfir 1000 ma á bók bíða líka og það verður miklu meira vandamál en þessi jöklabréf. 

Andri Geir Arinbjarnarson, 17.10.2009 kl. 12:08

4 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Takk stúlkur.

Gunnar Skúli Ármannsson, 17.10.2009 kl. 16:26

5 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Andri Geir, við höfum þrasað um þetta áður og niðurstaðn var hvorugum að skapi. Ég segi því bara pass.

Gunnar Skúli Ármannsson, 17.10.2009 kl. 16:28

6 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

.. eins og Svavar sagði víst við Breta og Hollendinga, eða var það, ég nenni þessu ekki lengur?  

Over and out. 

Andri Geir Arinbjarnarson, 17.10.2009 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband