Í hvaða liði erum við??

Spillingaumræðan er að hjaðna. Þrátt fyrir það situr óbragðið enn þá í munni mínum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur látið kaupa sig. Hver voru málefnin sem hann barðist fyrir. Þingmenn koma og fara en stefnan á vara áfram. Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn sátu að völdum árum saman. Þeir sem nutu þess voru þeir sem meira máttu sín. Þeir sem voru minnimáttar hlutu ekki náð fyrir þessum flokkum. Því ættu fyrrverandi kjósendur þessara flokka að hugsa sig vel um á laugardaginn kemur. Erum við í liði með yfirstéttinni eða ekki?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Það er ljóst að Samfylkingin á líka eftir að gera upp við fortíð sína varðandi tengsl vissra aðila við útrásarliðið. Mér sýnist Sjálfstæðisflokkurinn jafnvel vera skrefinu framar í sínu uppgjöri við þessa menn?

Það er sorglegt að heyra frá talsmönnum Samfylkingar að þeir séu reiðubúnir til að rjúfa væntanlegt samstarf við VG á miðju kjörtímabili vegna Evrópubandalagsþráhyggju. Ég efast ekki um að margt Samfylkingarfólk er heiðarlegt félagshyggjufólk fólk eins og Jóhanna, Ólína Þorvarðar, Dagur og fleiri. Allt öðlingsfólk og félagshyggjusinnar.

En innan Samfylkingarinnar hefur þrifist ýmiskonar illgresi í skjóli ímyndaðrar efnahagsvelgengni undanfarinna ára. Fólk sem núna sýnir réttan lit og er tilbúið til að fórna fyrstu alvöru meirihlutastjórn hreinna félagshyggjuafla á Íslandi.

En þetta er auðvita bara mín skoðun og ég ætla að kjósa VG svo það er auðvita ekkert að marka mig.

Ég get vel unað Frjálslynda flokknum og Borgarahreyfingunni að fá góðan skerf af leyfunum af fylgi Sjálfstæðisflokksins.

Lifi fjalldrapinn!

Ásgeir Rúnar Helgason, 19.4.2009 kl. 15:58

2 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll Ásgeir,

ég er sammála þér um þína greiningu á innviðum Samfylkingarinnar. Það er viss óþægindatilfinning, við treystum ekki Samfylkingunni 100% sökum þessara afla sem þú nefnir. Því er ég mjög sáttur við val þitt í þessum kosningum. Í vor hefur bilið milli F og VG minnkað verulega sökum vissra mannabreytinga í okkar liði. 

Gunnar Skúli Ármannsson, 19.4.2009 kl. 21:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband