Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Glorhungraðir fiskar.

Kenningin um vanveidda glorhungraða þorska virðist ekki eiga upp á pallborðið hjá ráðamönnum þjóðarinnar. Ef hún er rétt, hvað þá?

Jú, eftir því sem við veiðum færri fiska því fleiri verða um fæðuna í hafinu. Þá drepast enn fleiri úr hungri og færri hafa þrek til að auka stofnstærðina. 

Ef hún er röng þá er næg fæða í sjónum en við veiðum of mikið. Þá er lausnin að veiða minna svo fiskurinn hafi tækifæri til að fjölga sér.

Vesalings Einar K. að þurfa ákveða hvora leiðina við skulum fara. Hann er sjálfsagt búinn að ákveða sig fyrir löngu, því niðurstaða Hafró var ekki óvænt, a.m.k. ekki fyrir innvígða. Þegar rætt er um "þverpólitískt samráð" á hann ekki þá við að niðurstaðan verði samsuða sem muni geðjast sem flestum hagsmunaaðilum sem eitthvað mega sín. Það er pólitík. Ef ákvörðunin er alltaf pólitísk hvers vegna að reka þessa vesalings vísindamenn á haf út til að telja fiska. Í stað "þverpólitísks samráðs" er þá ekki nær að fá fjölda vísindamanna með ólíka sýn á vandamálinu og lausnir til að koma saman og ræða málin. Þetta er í raun líffræði fyrst og fremst. Halda almennilega vísindaráðstefnu, þær hafa nú verið haldnar af minna tilefni. 


Matvandir þorskar hjá Hafró.

Hvernig skyldi maður telja fiska. Um það er deilt. Fyrir landkrabba sem sér bara fisk á disk geta rökræðurnar heldur betur snúist fyrir manni.

Við höfum verið þokkalega hlýðin Hafró, svona nokkurn veginn fiskað fjórðunginn af stofninum, þ.e.a.s ef ég skil þetta rétt. Ef svo er hljóta 75% að geta haldið stofninum við, a.m.k. ef um væri að ræða kanínur. En nú er þorskurinn ekki kanínur. Að fiskistofn sem ætíð minnkar í mælingum þrátt fyrir hóflega veiði, það hlýtur að vera eitthvað að, við erum að missa af einhverju. 

Gætu mælingarnar verið rangar, vorum við að veiða allt of stóran hluta af stofninum. Ættu þá ekki þorskarnir sem koma að landi núna að vera feitir og pattaralegir því þeir hafa nóg að éta því. mér skilst að þorskurinn sem við veiðum sé ekki feitur heldur grannur og vesældarlegur. Ætli þorskurinn sé orðinn svona matvandur hin síðari ár. Sennilega ekki, ég ætla að minnsta kosti ekki að veðja á að uppeldisfræði hafdjúpanna hafi breyst mikið. Ég held að enn gildi að eins dauði er annars brauð.

Þetta mjakast hjá mér, kannski mun ég skilja þetta einhvertímann, góð ráð vel þeginn. 


Landspítalinn.

Gangainnlagnir ganga út á það að sjúklingar liggja á göngum spítalans, öllum sem þar eiga leið um augljósir. Að vera með verki, hita, sveittur, skítugur, óglatt, kastandi upp og í angist yfir ástandi sínu er ekki neitt sem við óskum neinum. Að hafa áhorfendur að öllu saman gegn vilja okkar er ekki samboðið neinum. En þannig er það.

Þegar ég fór fyrst að ráfa um ganga spítalanna í Reykjavík fyrir um aldafjórðungi síðan voru gangainnlagnir daglegt brauð. Þær eru það enn í dag.

Það virðist sem fólk kæri sig kollóttann. Sjúklingar virðast vera svo fegnir að sleppa lifandi út af þessari stofnun að þeim er fyrirmunað að þrýsta á neinar breytingar. Þeir ætla aldrei að koma aftur og reyna að gleyma öllu saman. Eða álíta þeir að gangainnlagnir séu eðlilegar.

Það þarf svo sannarlega að taka til hendinni, nema alþjóð álíti að hlutirnir séu í góðu lagi eins og þeir eru núna. Það þarf að bregðast strax við húsnæðisvanda LSH. Það þarf síðan að byggja nýjan spítala fyrir okkur Íslendinga sem er okkur samboðinn eins fljótt og hægt er. Ég er ekki viss um að yngri kynslóðir Íslendinga muni sætta sig við núverandi þrengsli eins og sú eldri hefur gert af sinni alkunnu nægjusemi. Það gleymdist nefnilega að ættleiða nægjusemina. Með hliðsjón af því að við hefðum átt að vera búin að reisa nýjan spítala fyrir okkur Íslendinga fyrir 30 árum þá erum við á síðasta snúning með nýbygginguna og verðum því að spýta í lófana svo einhver sómi verði í þessum málum.


mbl.is Læknaráð segir gangainnlangir ekki boðlegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig bjargar maður ráðherra frá drukknun?

Einar K Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra er í vanda. HANN ÞARF AÐ TAKA ÁKVÖRÐUN. Hvernig, jú spyrja alla spjörunum úr hringinn í kringum landið. "Haldið þið að kvótakerfið hafi komið ykkur illa?" Ekki það að það sé eitthvað rangt við að leita ráða. Sjálfsagt það besta í stöðunni. Ef ég ætti í hlut sem er ekki sérfróður um útvegsmal væri það ekki frétt að vera með allt niður um sig. En að sjávarútvegsráðherra sé sí og æ að koma af fjöllum er í sjálfu sér stórmerkilegt.

Kerfi sem hefur brugðist ár eftir ár er gallað. Þarf eitthvað að rannsaka það? Hvað hangir á spýtunni?

Er ekki verið að vinna tíma með þessu málæði. Þegar upp verður staðið verða allir útgerðastaðir landsins komnir í eyði ef EKG fær að masa í friði.

Það sem þjóðin þarf að fara að gera upp við sig hvort nokkrir eiga að maka krókinn í nafni hagræðingar eða hvort við eigum að leyfa fólki að búa og lifa þar sem það vill. En fyrst þarf þjóðin að hugsa.

Ég vona að enginn álasi mér fyrir að vita ekki hvernig maður bjargar ráðherra frá drukknun. 

 


mbl.is Sjávarútvegsráðherra: Stöndum frammi fyrir erfiðum ákvörðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilablóðfall Moggans-II

Mogginn er ekki eini öldungurinn sem hefur fengið slag í dag. Framsóknarflokkurinn í Reykjavík er farinn að ræða kvótamál landsbyggðarinnar. Allur Reykjavíkurlisti Framsóknarflokksins hélt ræðu í dag í tilefni sjómannadagsins. Þar var bent á ef til vill, kannski, sennilega, líklega og að öllum líkindum hefði kvótaflakk á Íslandi skaðleg áhrif á hinar dreifðu byggðir landsins. Velkominn heim Björn Ingi.

Nú vill hann gera fiskveiðistjórnun að byggðarmáli. Hans hugmynd er að leyfa fólki sem vill veiða fisk frá ákveðnum stöðum á landinu okkar grið fyrir kvótagreifunum. Við erum að upplifa endurfæðingu Framsóknarflokksins sem dreifbýlisflokks. Það er gott. 

 


Knattspyrnulandsleikur.

Ég elska og dýrka svona sjónvarpsefni. Eins og þennan landsleik í knattspyrnu núna. Þetta er hrein himnasending inn í líf mitt. ÉG FÆ FRIÐ. Það er enginn að trufla mig, fjölskyldan liggur afvelta í dópinu víðsvegar um húsið og ég get sinnt mínum áhugamálum. Ég get lesið, bloggað eða gert eitthvað annað nytsamlegt, eða bara hugsað. Ég ætla ekkert að vera skandalisera með það hvernig standi á því að viti bornar mannskepnur geti haft gaman af því að horfa á 22 karlmenn eltast við uppblásna leðurtuðru. Að minnsta kosti ef ég yrði tilneyddur til að horfa slíkan viðburð yrði kvennalandsliðið alltaf mitt fyrst val, það er amk meira fyrir augað. Reyndar berast athugasemdir íþróttafréttamannsins um allt hús og geta á stundum verið tilefni til aðhláturs. Eins og td þessi, sögð með sannfæringu, " ef hann hefði náð að sparka boltanum í markið hefði orðið mark". Þetta fatta ég meira að segja. Sem sagt slíkt sjónvarpsefni er mér mjög að skapi og vonandi verða sem flestir landsleikir í framtíðinni.

Sigurjón framkvæmdastjóri FF.

Jæja nú er stefnuræðan komin. Hún var falleg eins og við var að búast. Mey skal að morgni lofa. Svo nú hinkrum við við  sjáum efndirnar.

Steingrímur J verður að forðast að verða "stand up kómíker" svo hann verði tekinn alvarlega, annars var hans ræða skemmtileg að vanda.

"Kanna skal afleiðingar kvótakerfisins á hinar dreifðu byggðir landsins" Guðjón Arnar tók þetta fyrir í sinni ræðu ásamt öðrum þingmönnum Frjálslynda flokksins. Sem lækni dettur mér helst í hug að eitthvað sambærilegt væri að gera rannsókn á því hvernig fólki farnaðist að stökkva úr flugvél í 1000 m hæð án fallhlífar. Allir yrðu sjálfsagt að klessu. Almenn skynsemi verður einhvern tíman að ráða för, við getum ekki endalaust gert stúdíur á mannlegri hegðun til að átta okkur á tilverunni.

Annað sem vakti athygli mína í dag er að fullyrt er að Sigurjón Þórðarson verði næsti framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins. Greinilegt er að margir eru þessari ákvörðun sammála og telja hana mikið gæfuspor fyrir flokkinn. Tek ég heilshugar undir það. Sigurjón er vel að þessu kominn. Sagt er að honum hafi verið heitið þessari stöðu ef hann kæmist ekki inn á þing. Sigurjón tók að sér norðaustur kjördæmi þar sem fylgi flokksins var ekki gott. Hann hefði getað farið fram í norðvestur og verið nokkuð öruggur með sitt þingsæti. Hann stóð sig frábærlega vel í kosningabaráttunni og reif upp fylgi Frjálslynda í norðaustur kjördæminu. Ekki víst að margir hefðu leikið það eftir. Sérstaklega er þetta eftirtektavert í ljósi þess að Sigurjón stóð að mestu leiti einn í þessari kosningabaráttu fyrir norðan og hafði enga kosningavél á bak við sig.

Sigurjón er búinn mörgum kostum sem koma að góðum notum fyrir Frjálslynda flokkinn. Hann er mjög vinnusamur. Á auðvelt með að hlusta á fólk og skynja fólk, sem sagt ríkur af tilfinningargreind. Sá mælikvarði er oftast notaður í dag til að ráða í stöður  yfirmanna í fyrirtækjum sem vilja ná árangri. Það sem margir taka eftir er að hann fer ekki í manngreinarálit og getur rætt málin við alla, jafnvel sýnir hann þeim sem eru "léttvigtarmenn"meiri áhuga en þungavigtarmönnum. Svo skaðar það ekki að hann er mjög vinsæll innan flokksins. Auk þess á hann mikið "fylgi" utan flokksins því margir hafa harmað það að hann hafi fallið af þingi. Það segir okkur að hann hafi haft meiri tilgang inn á Alþingi en að vera bara málpípa síns flokks. Hann hefur greinilega höfðað til margra með hreinskilni sinni og einurð í sínum málflutningi. Sem andlit flokksins er hann því rétti maðurinn. Til hamingju Sigurjón en fyrst og fremst óska ég okkur í Frjálslynda flokknum til hamingju. 


Kremlverjar.

Forstjóri Talnakönnunar Benedikt kom fram í útvarpinu í gær. Þar tíndi hann til ýmsar hagtölur um mannafla í sjávarútvegi og breytingar á þeim á liðnum árum. Þegar hagrænir tölustafir raðast saman á þann hátt að summa þeirra styður við framferði manna þá finnst sumum að þá sé komin fram réttlæting á hegðun þeirra. Réttlæting er ekki sama og sönnun. Það er ekki sönnun á þeirri staðhæfingu að það sé best fyrir alla Íslendinga að allur fiskveiðikvóti sé hér en ekki þar. En þannig eru þessir tölustafir notaðir. Tölustafir eru bara eins og aðrir stafir, lýsa því sem eigandinn vill. Sanna ekki neitt um hvað einhverjum er best. Að reyna að sanna að kvótaflakk sé öllum Íslendingum til hagsbóta er andvana fædd tilraun. Enda er þetta bara "eftirá" réttlæting. Eftir að verðmiði kom á kvótann-ég á ann-þá var alltaf tilgangurinn að auðgast á honum. Að auðgast er í sjálfu sér ekki rangt, en ef kostnaðurinn er almennt meiri en ávinningurinn þá er það ekki til hagsbóta fyrir alla Íslendinga. Því var alltaf tilgangurinn sem helgaði meðalið, þannig tók einnig Lenin til orða þegar hann réttlætti blóðsúthellingar Rússnesku byltingarinnar. Sagan sýndi okkur svo að hún varð ekki öllum Rússum til hagsbóta heldur eingöngu Kremlverja. Því er Sjálfstæðisflokkurinn kominn á bás með gamla Kommúnistaflokknum í Rússlandi, bæði situr hann sem fastast og hyglir bara sínum "Kremlverjum".  Þetta er á engan hátt í samræmi við jafnan rétt landsmanna sem ný ríkisstjórn státar sig af. Niðurstöður kvótaflakks eru þær að fáir auðgast en margir missa vinnu, viðurværi, heimili og aðrar eignir. Það getur ekki flokkast sem jafn réttur. Það getur ekki verið sanngjarnt hvað sem allri hagræðingu líður. Að hundruð manna missa fótanna í tilverunni til hagsbóta fyrir einn eða tvo er ekki jöfn staða, Að auðleigð þessara tveggja eða svo muni gagnast okkur hinum er alls óvíst. Því dreg ég stórleg í efa að það sé sannað að það sé rétt að fara fram með þeim hætti sem er gert hjá sjávarbyggðum landsins.


Titrandi tannhjól með skoðun.

Við sitjum úti á pallinum, ég, konan og hundurinn. Búin að kveikja upp í eldstæðinu, drekkum ískalt hvítvín í tilefni þess að tveggja stafa tala sást á hitamælinum í dag í Reykjavík. Ofboðslega kósí, svolítið yfirstéttalegt ekki satt. Samt er maður bara tannhjól í tilverunni.

Þetta litla tannhjól getur haft skoðanir. Ætli því muni geðjast að stefnuræðu forsætisráðherra á morgun. Ætli sú umræða sem komi í kjölfarið verði mér að skapi. Litlu tannhjólin eiga víst að gefa ríkisstjórninni 100 daga til að sanna sig. Ef læknir er ófær og stútar nokkrum sjúklingum á sínum fyrstu 100 dögum er það þá bara fyrirgefið eins og ekkert sé. Vonandi ekki. 

Sem heilbrigðisstarfsmaður mun ég að sjálfsögðu hlusta eftir því sem snýr að þeim málaflokki. Ekki síður hvort ríkisstjórnin ætli að stúta nokkrum sjávarplássum til viðbótar á sínum fyrstu 100 dögum, þetta verður síðan flokkað sem minniháttar afglöp síðar meir á 100 daga reglunni.

Að öllu gamni slepptu þá held ég að fólk verði að hugsa um byggðarmál eins og þroskað fólk. Viss hagræðing er nauðsynleg. Uppbygging byggðakjarna er nauðsynleg. 'Eg get ekki séð þá nauðsyn  sem knýr menn og þetta kerfi til að leggja heilu sjávarplássin í eyði án fyrirvara og á örskömmum tíma þannig að líkja má því við náttúruhamfarir. Aðferðafræðin er snargölluð, við hljótum að geta gert betur.


Börnin okkar.

Sum börn ráfa um, leita sér að athygli sem ekki fæst heima. Foreldrarnir svo uppteknir, reglurnar óljósar, reyndu bara að bjarga þér vinurinn. Auðveld fórnarlömb, hægt að draga þau asnaeyrunum með gylliboðum og misnota þau síðan. Jafnvel oftar en einu sinni. Skömm. Ekki klagað. Mikil er ábyrgð okkar foreldranna. 

Flateyringar voru líka dregnir á asnaeyrunum. Mikil er ábyrgð landsfeðranna. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband