Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Strætó.

Nú ætlar Gunnar í Kópavoginum að gefa öllum frítt í strætó í eitt ár. Mjög gott framtak, en ég er svolítið svartsýnn á árangurinn. Hugmyndin er að allir hópist í vagnana. Til þess að hinn venjulegi Íslendingur noti strætisvagn í stað einkabíls þarf kerfið að uppfylla viss skilyrði. Í fyrsta lagi þarf annað hvort að vera ókeypis eða hægt að borga með venjulegu bankakorti, því við höfum aldrei á okkur strætómiða né smápeninga. Í annan stað verður að duga að taka einn vagn, það er allt of flókið fyrir Íslendinginn að skipta um vagn. Að lokum, þetta skiptir höfuðmáli, strætó á aka svo þétt að við þurfum ekki að ath hvað klukkunni líður. Þá er ég að tala um vagn á 5 til 10 mín. fresti.

 Sem sagt, bara vita númer hvað, hvaða stoppistöð, ekkert að borga og hvenær sem er, þá á strætó smá möguleika að keppa við einkabílinn.

Þangað til að kerfið getur fullnægt þessum frumþörfum okkar eru allar tilraunir svo til dauðadæmdar.


Neskaupsstaður-Egilsstaðir.

Nú þetta er búið að vera góður tími það sem af er. En eiginkonan fór til Reykjavíkur í dag. Flogið er frá Egilsstaðarflugvelli og því þarf að taka rútu fyrsta áfangann. Hafði ég hringt í Austfjarðarleið í fyrradag og kynnt mér málin. Mikið rétt rúta kl 1545 frá Neskaupsstað og alla leið upp á flugvöll, heila 75 km. Hentað þar að auki mjög vel því rútuferðin passaði akkúrat við brottför vélarinnar.

Ég kem konunni tímanlega á Olís bensínstöðina þar sem rútan átti að koma, en eins og ykkur er nú þegar farið að gruna kom engin rúta. Alls engin. Konan hringir í Austfjarðarleið og svörin voru hálf vandræðaleg,, ee héldum að enginn ætlaði að fara,, ee sorry ee,,. Þegar konan mín benti viðkomandi á að hún þyrfti að ná flugvél suður, ja, þá gæti hugsanlega verið komin rúta eftir í fyrsta lagi hálfa klukkustund.

Niðurstaðan varð sú að ég þurfti að hendast úr vinnunni og fá lánaðan bíl og keyra í einu hendingskasti með konuna 75 km út á flugvöll.

Þeir hjá Austfjarðaleið ættu nú að skammast sín.


Neskaupsstaður-II

Var að vinna í allt gærkvöld fram að miðnætti, fékk að sofa í nótt og þá er maður sáttur. Góður nætursvefn skiptir öllu. Vökulögin virðast ætla að koma seint hjá okkur læknunum. Hluti af skýringunni er að við höldum að við séum ódrepandi og óskeikulir algjörlega án tillits hvort við sofum yfir höfuð eða ekki. Ef þessi kennisetning heldur vatni þá eru læknar öðruvísi uppbyggðir svona "mekanískt" en annað fólk. Ég held að læknar séu bara öðruvísi en annað fólk vegna þess að þá skortir innsæi á að þeir þurfi líka að sofa eins og annað fólk.

Fórum hjónakornin í sund og konan synti sína 1000 metra. Mjög góð sundlaug hér á staðnum með mjög góðri aðstöðu, allt nýuppgert, nýir pottar og rennibraut væntanleg. En nú þarf ég að fara að vinna aftur.


Kjölturakkinn minn.

Hundar eru sérkennilegar skepnur. Þeir eru í raun mjög húsbóndahollir. Þeir vilja þóknast manni. Því er svo auðvelt að þjálfa þá og láta þá fylgja settum reglum. Þeir vefengja ekki forystu mína. Því er forysta mikil ábyrgð. Ég verð að vera traustsins verður. Hundurinn reiðir sig á mig. Ef ég bregst eða brýt trúnað við hundinn þá getur samstarf okkar farið algjörlega í vaskinn. Þetta er því gagnkvæmt. Þannig er það í daglega lífinu líka. Þeir sem eru foringjar verða að gæta sín að bregðast ekki trúnaði við sína liðsmenn. Ef það gerist getur hundurinn dáið og breyst í varúlf.

Sigurjón Þórðar Framkvæmdarstjóri FF.

Það er gott til þess að hugsa að Sigurjón Þórðar verði næsti framkvæmdastjóri FF. Hann er öflugur talsmaður helstu baráttumála flokksins. Mjög öflugur sendiherra hinna dreifðu byggða landsins. Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn. Sjaldan hefur verið sótt jafn hart að sjávarplássum landsins og nú. Svona feikivinsæll maður og Sigurjón er, jafnvel langt út fyrir raðir flokksins, mun koma þar sterkur inn. Í raun ómissandi fyrir framtíð FF flokksins. Fyrir utan hans almennu vinsældir þá hefur hann ásynd hins ákveðna stjórnmálamanns sem hefur jafnframt ekki átt í illdeilum innan flokks og barist mikinn fyrir mörgum góðum málum án þess að festa sig í neinum öfgum.

Því geta íbúar sjávarbyggða landsins treyst áfram á að Sigurjón verði áfram þeirra sendiherra þrátt fyrir að hann komst ekki inn á þing. 


Flateyri.

Það kom maður og keypti öll tæki og tól til að verka fisk á Flateyri. Hann á engan kvóta. Hann getur sem sagt ekki veitt fisk og verkað hann. Hann getur keypt fisk og verkað hann. Maðurinn sem seldi honum fiskverkunartækin á Flateyri seldi einhverjum öðrum réttinn til að fiska. Sá hin sami mun sennilega fiska og selja síðan hinum sem keypti öll tækin á Flateyri fisk svo hann geti verkað fisk.

Það er engin furða að landkrabbi eins og ég í höfuðborginni botni ekki neitt í neinu.

Út á hvað gengur sjávarútvegur í dag? Það sem gefur mest í aðra hönd er ekki að veiða og verka fisk. Það sem gefur best er að selja réttinn til að veiða. Kaupa og selja pappír.

Já sjómennskan er ekkert grín. 


Hafró og Bónus

Mér skilst að Hafró kanni fiskinn sem sjómenn koma með að landi og noti hann til að meta fiskinn í sjónum. Soldið merkilegt. Ég hefði haldið að sá fiskur segði okkur eingöngu hvað viðkomandi sjómenn velja til að koma með að landi. Eins og það sem ég kem með úr Bónus er fyrst og fremst lýsing á mínum smekk, þarf alls ekki að sýna dæmigerðan þverskurð á vörum Bónusar.

Ef þetta er nú allt rétt skilið hjá mér þá verð ég að segja að aðferðir Hafró eru ákaflega frumstæðar. Þær hljóta að vera misvísandi, það sér það hver heilvita maður. 


Lystarstol þorskanna.

Ég held að þetta með glorhungraða matvanda þorska sé að koma hjá mér. Ég er aftur á móti að velta fyrir mér öðrum þorskum. Eftir lýsingum að dæma þá eru þeir álíka matvandir og glorhungraðir og þorskarnir í hafinu. Þeim finnst litlir og meðalstórir útvegsstaðir á landinu okkar ekki kræsilegir. Þessi sótt hefur ágerst svo í seinni tíð að helst má líkja við lystarstol á háu stigi. Þeir hafa sótt mun meir í stærri staðina. Sumir segja að þessi sjúkdómur sé eðlileg þróun stofnsins. Það hljóta að vera ríkar andstæður sem gera stofni eðlilegt að þróast sökum sjúkdóms. Hér þrýtur mig allan skilning þrátt fyrir langskólanám. Hef ég í hyggju á næstunni að ganga um eins og betlandi maður og reyna að fá botn í þetta, læt vita þegar ég verð fróðari.

Rík þjóð.

Ég gat ekki betur heyrt en að seðlabankastjóri teldi að við hefðum vel efni á því að fara eftir ráðleggingum Hafró. Mikið var það gott. Við skundum bara í bankann og tökum út spariféð og lifum svo praktuglega.

Gangainnlagnir

Ég hef áður fært í tal þau þrengsli sem Íslendingar verða að gera sér að góðu á sjúkrahúsinu sínu-Landspítalanum. Það ætti ekki að þurfa að fjölyrða um hversu niðurlægjandi það er að liggja flatur fyrir allra augum. Oft neyðist maður til að ræða við viðkomandi um persónuleg mál í allra áheyrn. Einnig eru dæmi þess að fólk hafi verið skoðað á gangi og því þurft að bera sig að hluta. Það skapar auk þessu aukna smithættu fyrir viðkomandi og aðra sjúklinga. Að rýma deild vegna bruna með alla ganga fulla af rúmum og öðrum hlutum sem vantar geymslupláss undir, yrði óvinnandi vegur.

Nú hefur Lára Stefánsdóttir komið fram og sagt sína sögu. Að þessi upplifun skuli vera það slæm að hún vilji helst geta gleymt henni kemur ekki á óvart. Þú varst enginn aumingi Lára, þú áttir einfaldlega betra skilið. Ég hef oft velt þessum smánarbletti sem gangainnlagnir eru fyrir mér. Einnig eru sumar göngudeildir staðsettar þannig að þær eru á gangi sem eru um leið stofnæð innan sjúkrahússins. Þar er fólk reyndar alklætt en samt að leita sér hjálpar fyrir allra augum. Einu sinni var það þannig að stórslasað fólk, blæðandi og nánast í endurlífgun þurfti að fara í gegnum göngudeild Háls Nef og Eyrnadeildar í Fossvoginum til að komast í tölvusneiðmyndatækið. Í hvert sinn sem við hlupum framhjá eyrnabörnum og foreldrum þeirra, hrópandi "frá frá", og stundum var slóðin eftir okkur blóði drifin, þá hugsaði ég, er ég að vinna á fínu sjúkrahúsi hjá forríkri þjóð eða hvar er ég. Til allra hamingju hefur þetta þó breyst.

Hvers vegna þessi ríka þjóð á stórglæsilegar banka- og verslunarhallir á heimsmælikvarða en hefur enn ekki byggt yfir sig sómasamlegt sjúkrahús er mér ráðgáta 

Nú skora ég á alla þjáningasystur og bræður Láru að framkvæma slíka bloggdrífu að engum blandist hugur um að ástandið er óþolandi og krefst strax úrlausna, ekki á morgun. 


mbl.is Einkalíf fótum troðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband