Vilhjálmur og Bjarni.

Það var mjög sérkennilegt Kastljósið í kvöld. Bjarni staðhæfði að viss mál hefðu verið rædd en Vilhjálm rak ekki minni til þess. Ætli við verðum ekki að fara að taka alla fundi upp á band til að fyrirbyggja það að menn gleymi svona hratt.

Að Vilhjálmur mæti í Kastljósið sýnir ákveðið hugrekki, hann er greinilega að berjast fyrir tilvist sinni og æru. Eru samflokksmenn hans sáttir við framvindu mála. Eru vinnubrögð, þar sem minnisleysi er aðal vörnin Sjálfstæðisflokknum sæmandi? Eru Sjálfstæðismenn upp til hópa rænulausir á fundum. Við ætlumst til þess að kjörnir fulltrúar okkar séu vakandi á fundum og beiti gagnrýninni hugsun, en kokgleypi ekki allt sem  sagt er við þá. 

Sérkennilegir þessir Sjálfstæðismenn, það er gott mál að taka vinnuna frá venjulegu fólki á landsbyggðinni þegar menn eru að skutla kvóta á milli sín og á sama tíma að afhenda fjöregg þjóðarinnar í hendur fárra sérvaldra auðmanna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig H

Þetta versnar með degi hverjum,ég er svo meðvirk að ég vorkenndi Villa karlrolunni í Kastljósþættinum eins má ég ekki til þess hugsa að Björn Ingi sleppi billega frá þessu klúðri.

Rannveig H, 16.10.2007 kl. 00:01

2 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Ég verð að segja að ég hálf vorkenni Vilhjálmi. Línurnar eru nú samt að skýrast, eftir allt er þetta ekki bara Björn Ingi sem sveik, heldur vissi Vilhjálmur ekkert hvað hann var að gera.

Hún er sóðaleg og siðblind pólitíkin, það er kominn tími til að "þetta" fólk vinni vinnuna sína og viti hvað það er að samþykja.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 16.10.2007 kl. 08:28

3 Smámynd: Halla Rut

Já ég vorkenni honum líka, það lítur út fyrir að hann hafi veri gabbaður.

Halla Rut , 16.10.2007 kl. 20:48

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ekki vorkenni ég honum, hann var ekkert gabbaður, heldur nennti hann ekki að kynna sér málin og svaf á fundum og treysti alfarið á aðra.  Ég segi nú bara eins og Davíð forðum "Svona gera menn ekki."

Jakob Falur Kristinsson, 17.10.2007 kl. 17:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband