Hneykslaðir besservisserar gleyma AGS eftir pöntun

Það sækir að manni vonleysi þessa dagana. Í skjóli hrunskýrslunnar eru tvö vond mál fyrir vinstri stjórnina send til almennings. Hrunskýrslan er notuð til þess að enginn taki eftir vondu málunum. Fyrra dæmið er skýrsla Seðlabankans um fátækt á Íslandi og að aðgerðir stjórnvalda hafa nánast engu breytt fyrir skuldsetta einstaklinga. Seinna dæmið er viljayfirlýsing íslenskra stjórnvalda við AGS. Þar kemur fram, eins og í þeim fyrri, að ekkert á að gera í raun fyrir skuldsett heimili landsmanna. Þeir sem lifa ekki af með lengingu lána fara bara á hausinn, málið dautt. Skýrsla Seðlabankans staðfestir þetta verklag.

Þjóðinni virðist ekki umhugað um þessi mál, fréttamenn reyna ekkert til að varpa ljósi á þessa hluti. Við erum blekkt í sífellu, spunameistarar ráða tilverunni. Hvort skiptir grátkór Samfylkingarinnar, tárvot Þorgerður, fúll forseti meira máli, eða afsal lands og þjóðar kæru landsmenn?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað vilt þú gera? Þú vilt ekki semja um Icesave,  þú vilt ekki AGS. Ríkisstjórnin ætlaði að verja fjölskyldurnar en átti að gera það með báðar hendur bundnar fyrir aftan bak? Telur þú að stjórnin sitji á gullkistu og vilji ekki deila með okkur hinum? Gæti verið að útlendu stóru kröfuhafarnir (Deutze Bank ofl) hafi hér eitthvað að segja? Hvað með neyðarlögin? Þú hefur kynnt þér málin- myndu þau halda? Eru þau kannski aðalástæðan fyrir klemmunni sem við erum í ? Eða er það bara illkvittni og illska stjórnarinnar?

Villi (IP-tala skráð) 18.4.2010 kl. 01:33

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það er merkilegt hvað þessir ip tölu athugasemdakjánar láta ljós sitt skína, ég er ekkert hissa að þetta fólk komi ekki fram undir nafni. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.4.2010 kl. 02:07

3 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll Villi,

 Það væri ágæt byrjun að Steingrímur stæði við kosningaloforðin.

Gunnar Skúli Ármannsson, 18.4.2010 kl. 10:37

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Því miður sýnist mér Stengrímur J. hafa verið ofreiknaður um flestar stærðir ef ekki allar.

Árni Gunnarsson, 19.4.2010 kl. 14:19

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Burt með Jóhönnu og Steingrím, neyðarstjórn er það sem við þurfum í dag.  Þetta er orðið bara gott og útséð með vanhæfni þeirra skötuhjúa.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2010 kl. 18:12

6 Smámynd: Elle_

Og VILLI skrifar: Hvað með neyðarlögin? Eru þau kannski aðalástæðan fyrir klemmunni sem við erum í ? Eða er það bara illkvittni og illska stjórnarinnar?

Neyðarlögin eru í fínu lagi og land hefur rétt til verja sig í neyð.  Enginn hefur kært ríkið vegna þeirra og ESA lítur svo á líka að framkvæmd neyðarlaganna hafi verið eðlileg.  Eins og í öðrum löndum, þar með talin löndum kúgara okkar í Icesave.  Viltu ekki bara kynna þér málin sjálfur??  Og jú, það er illska hinnar illræmdu stjórnar.  Stjórninni er ekki annt um fjárhag eða öryggi alþýðu landsins.  Þau eru að hugsa um Evrópu og valdastólana. 

Elle_, 22.4.2010 kl. 18:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband