Ársfundur SÍ í dag-reynslunni ríkari

Mér var boðið á ársfund Seðlabanka Íslands í dag. Ég mætti. Ég hélt í einfeldni minni að boðið yrði upp á umræður um landsins gagn og nauðsynjar. Í staðinn héldu menn ræður í röðum. Enginn horfðist í augu við staðreyndir lífsins í ræðum sínum og hafði því ekki forsendur til að ráða okkur heilt. Því leið ekki á löngu þangað til höfuð mitt seig ofaní bringu og ég steinsofnaði.

Eftir að fundi lauk var boðið upp á næringu. Eðal áfengi og snittur af dýrustu sort, ekki niðurskurður í þessu húsi. Ég stóð álengdar og virti fyrir mér söfnuðinn samtímis og ég sötraði á hvítvíninu. Elítan virtist þekkjast nokkuð vel innbyrðis, faðmar og knús, en ég stóð utangáttar. Langflestir sem ég kannaðist við höfðu haft rullu í leikhúsi Davíðs á sínum tíma og komið landi mínu lóðbeint á hausinn án vandkvæða.

Í sjálfu sér verður maður að líta á svona uppákomu sem hvern annan listrænan gjörning í boði skattgreiðanda. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Gratjúa þér með eðalztund í leikhúzi fáránleikanz ...

Steingrímur Helgason, 25.3.2010 kl. 22:35

2 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Þakka þér fyrir Steingrímur, efast um að ég muni endurtaka þetta ef ég fæ einhverju um það ráðið.

Gunnar Skúli Ármannsson, 25.3.2010 kl. 22:38

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Svona flottræfils samkomur eru örugglega haldnar daglega í hinum ýmsu opinberu stofnunum.   Þau éta og drekka fínerí, í boði okkar sem borgum launin þeirra líka. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.3.2010 kl. 23:35

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ljótt að segja: En hvar sem rætt er um þetta lið á kaffihúsum eða á vinnustðum þá er þetta ærulaust fólk sem er hatað og fyrirlitið af þjóð sinni.

En hrokinn og taumlaus og siðblindan.

Árni Gunnarsson, 26.3.2010 kl. 08:39

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vonandi komast aðrir að og geta hreinsað til hjá þessum fjandans rumpulýð.  Hingað og ekki lengra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.3.2010 kl. 17:34

6 Smámynd: Halla Rut

Auðvitað er ekkert breytt, við hverju bjóstu. En ég, kona bjartsýninnar, tel að þetta allt muni breytast með tímanum og það erum við, þjóðin, sem þurfum að standa vörðinn.

Halla Rut , 29.3.2010 kl. 13:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband