Sænskur læknir svæfir konur til að koma fram vilja sínum.

 Um þessar mundir er mjög sérstakt mál í rannsókn hjá lögreglunni í Malmö í Svíþjóð. Lýtalæknir sem er vel þekktur í Svíþjóð er sakaður um að hafa haft kynmök við sjúklinga sína. Við lestur sænskra dagblaða  http://sydsvenskan.se/sok/index.jsp  
kemur  í ljós að þetta er hið hræðilegasta mál. Mun læknirinn hafa svæft konurnar með svæfingalyfi sem hann stal frá svæfingalækninum sínum. Á þann hátt tókst honum að koma fram vilja sínum. Til allrar hamingju var ein konan sem mundi eftir athæfinu og kærði hann. Núna situr hann inni og fleiri konur hafa komið fram og málið vindur stöðugt upp á sig.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband